hotspot
20. janúar 2010 | 21:27:12Pistill

Frambjóðendur svara spurningum Heimdallar

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2010 er á næsta leiti. Hins vegar hefur það farið fram hjá mörgum fyrir hvað frambjóðendurnir standa. Þangað til nú.

Heimdallur leitaði til sinna færustu spurningasmiða og hver og einn frambjóðandi fékk eitraðan spurningakokteil til að svara.  Næstu daga ætlum við að birta þau svör sem okkur hafa borist, án þess að dæma um verðleika þeirra allra.

Fyrsta svarasettið er nokkuð gott, en gamla brýnið Björn Gíslason tók að sér að svara fyrsta skammti. Spurningar og svör má finna í dálkinum hér til hliðar.