hotspot
22. janúar 2010 | 16:00:39Pistill

Breytum tónlistarhúsinu í spilavíti

Byrjum á ađ átta okkur á nokkrum einföldum stađreyndum:

1. Klassísk tónlist er uppáhaldstónlist útrásarvíkinganna.

2. Á besta stađ í Reykjavík er núna veriđ ađ byggja höll, sem á einungis ađ hýsa klassíska tónlist og fínt fólk.  Vćri ekki nćrri lagi ađ byggja frekar fangelsi undir ţetta fólk?*

3. Ef mađur er mjög heppinn, ţá er hćgt ađ grćđa peninga í spilavítum.

*Reyndar líđur mér alltaf eins og ég sé í fangelsi ţegar ég fer á sinfóníutónleika, en ţađ er önnur saga.

Ţađ átta sig kannski ekki allir á ţví en Sinfóníuhljómsveit Íslands ţarf styrki frá ríkinu til ađ standa undir sér. Ţetta á ekki eftir ađ breytast, sérstaklega ekki viđ ađ flytja hana í stćrra og dýrara hús. Í ţau fáu skipti sem ađ hljómsveitin nćr ađ fylla Háskólabíó er ţriđjungur salarins andlega fjarverandi (nb. ţetta vćri Íslandsmet, ef ekki vćri fyrir Óháđa söfnuđinn).  Tónlistarhús, sem á ađ hýsa tónlist, mun aldrei standa undir sér.

Ţađ vćri örugglega hćgt ađ fylla salinn ţegar Laddi frumsýnir Laddi-sjötugur og ţegar Bubbi heldur 12.12.12. tónleikana sína, en ţurfum viđ í alvörunni flottasta hús í heimi á flottasta stađ í heimi fyrir ţetta?

Bara ef ţađ vćri til einhver starfsemi sem fer fram í flottum húsum á flottum stöđum sem svo gott sem framleiđir peninga...

Ég er augljóslega ađ tala um ađ hafa spilavíti á hafnarbakkanum.  Ţađ eru enginn rök lengur fyrir ţví ađ banna starfsemi spilavíta á Íslandi.  Um leiđ og betsson.com birti fyrstu heilsíđu auglýsinguna sína í Fréttablađinu hefđi mönnum átt ađ vera ţetta ljóst. Betsson er meira ađ segja á íslensku! Jafnvel Jóhanna gćti notađ síđuna, ef hún kynni á internetiđ.

Hversu lengi ćtla Íslendingar ađ vera ţrćlar eldgamalla og úldinna hugmynda? Viđ erum bara 300.000, ţađ ćtti  ekki ađ vera svona mikiđ mál fyrir okkur ađ keyra í gegn breytingar á samfélaginu.

Um leiđ og íhaldssemi fer úr tísku á Íslandi gerist eitthvađ stórkostlegt.

-Jón Benediktsson