hotspot
04. mars 2010 | 12:29:32Pistill

X-Þjóðin á þing!

Alþingismaðurinn og heiðurslistamaðurinn, Þráinn Bertelsson, mætti í útvarpsþáttinn Í Bítið á Bylgjunni í vikunni til að lyfta umræðunni um listamannalaun á hærra plan. Fullyrti Þráinn að þeir sem væru á móti því að ríkið greiddi listamannalaun væru fábjánar. Hann gekk svo lengra og sagði að fimm prósent þjóðarinnar væru fábjánar.

Umræðan um listamannalaun spratt upp úr netkönnun sem gerð var á Vísi, en hún benti til þess að um 80% væru á móti því að ríkið greiddi listamannalaun. Úrtakið var 1183 manns, en í þættinum kom fram að um 500 milljónir króna væru greiddar árlega úr ríkissjóði til listamanna.

Þráni fannst að vísu tilvist fábjána vera eðlilegt fyrirbæri, en gagnrýndi fjölmiðla harðlega fyrir að viðra skoðanir þessara fábjána líkt og þeir væru viti bornar manneskjur. Hann toppaði sjálfan sig síðan þegar hann reiddist tæknimanni þáttarins, nafna sínum Steinssyni, fyrir að blanda sér í umræðuna og bað hann ekki svo vinsamlega um að einbeita sér að því að stjórna tökkunum.

Þráinn glímir við ýmis vandamál, og sum augljósari en önnur. Hans helsta vandamál er þó það að hann er svo miklu greindari og hæfileikaríkari en meirihluti þjóðarinnar. Þar af leiðandi á hann enga samleið með fávísum almenningnum, og hví ekki að viðra þá skoðun sína þá opinberlega?

Þráinn segir á bloggi sínu að hann fái 150.000 kr. á mánuði fyrir skatta sem ,,æðstu viðurkenningu sem íslenska þjóðin kann að veita listamönnum sínum“. Það þykir mér afar há upphæð að greiða fyrir að sleikja sig upp við Framsóknarflokkinn á sínum tíma, að ógleymdum meistara listaverkunum ódauðlegu Líf-myndunum.