hotspot
05. mars 2010 | 10:14:15Pistill

Nei eða já?

Nei eða já? Nú eða þá? Aldrei mér tekst að tak' af skarið     
Vakin og sofin ég, velti þér endalaust fyrir mér     
Nei eða já? Af eða á? Erfitt er oft að finna svarið     
Þó á ég von á því að finna það hjá þér
.“

Sumir segja að íslenska þjóðarsálin kristallist í Eurovision og textum íslensku keppendanna.  Með örfáum undartekningum (eins og t.d. slagaranum Sjúbbídú) gæti ég alveg samþykkt þessa kenningu.  Nú gætu einhverjir sagt að Íslendingar væru alls ekki svona óákveðnir og að Heart2Heart dúettinn hafi málað allt of dökka mynd af ástandinu hér á landi. En málið er kannski ekki að Íslendingar séu óákveðnir, ég vil frekar líta á það þannig að við séum efasemdamenn.  Stærðfræðingurinn Bertrand Russel sagði:

„The fundamental cause of the trouble is that in the modern world the stupid are cocksure while the intelligent are full of doubt. Even those of the intelligent who believe that they have a nostrum are too individualistic to combine with other intelligent men from whom they differ on minor points.“

Þetta er auðveldlega hægt að heimfæra upp á íslensku þjóðina, enda erum við upp til hópa yfir meðalgreind (95% þjóðarinnar skv. nýjustu tölum). Það er því skiljanlegt að einhverjir efist þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn.  Ég ætla ekki að neita því, en ég var sjálfur fullur efa í upphafi (enda tilheyri ég 95%).  Stangast það ekki á hvort við annað að styðja það að stöndum við okkar alþjóðlegu skuldbindingar og að segja svo nei á laugardaginn?  Er það einhvern tímann rétt að gera eins og framsóknarmenn? Nei eða já? Erfitt er oft að finna svarið.

Það er reyndar ekki svo erfitt í þessu tilfelli, svarið er nei. Það kom tilboð á borðið sem var 70 milljörðum betra við það eitt að fá samningamann sem nennti að hafa málið hangandi yfir sér, og okkar svar við því var nei(!).  Það er enginn að berjast fyrir já-inu, ekki einu sinni þingmeirihlutinn sem barðist fyrir því að fá málið í gegn (nb. það eru 5748 ennþá í Facebookhópnum Alþingi afgreiði Icesave strax - það var barist fyrir því að málið yrði samþykkt).  Nei, nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er að kosningin sé ekki marktæk og þess vegna eigi fólk að sleppa því að mæta.

Af hverju er kosningin ómarktæk? Vegna þess að núna hafa komið fram upplýsingar sem sýna að það var rangt hjá Alþingi að samþykkja þessi lög. Nú í staðinn fyrir að benda á það hversu fáránlegt þetta er og tala um að réttast væri að ríkisstjórnin segði af sér, ætla ég að taka þessu tækifæri fagnandi. Héðan í frá er öll umræða um Íraksstríðið ómarktæk. Nú það hafa komið fram ýmsar upplýsingar sem sýna að málið var allt öðruvísi en íslensku stjórnmálamennirnir héldu og því ekki hægt að tala um það lengur. Sama má segja um virkjanir og í raun allar syndir Sjálfstæðisflokksins á síðustu árum.  

Nei, núna verðum við að grípa tækifærið. Það er ekki í lagi að Alþingi samþykki með reglulegu millibili lög sem >75% þjóðarinnar er á móti.  Sama hversu miklir efasemdarmenn við erum, þá verðum við að gera það sem við höfum verið að biðja um öll þessi ár. Taka af skarið, ráða okkar eigin örlögum og mæta á kjörstað.

-Jón Benediktsson