Hvernig sáu þeir Heimdall 1947?

 

Á 20 ára afmæli Heimdallar leitaði ritstjórn afmælisritsins til nokkurra þekktra sjálfstæðismanna og bað þá að svara eftirfarandi spurningu: "Hvert er álit yðar á starfsemi og hlutverki Heimdallar í íslenskum stjórnmálum?"

Jón Pálmason:
Merkasta stjórnmálafélag landsins

… Frá mínu sjónarmiði er félagið Heimdallur merkasta stjórnmálafélag landsins. Það hefur á undanfjörnum árum átt drjúgan og mikilverðan þátt í því, að Sjálfstæðisflokkurinn er svo frjálslyndur og víðsýnn stjórnmálaflokkur, sem raun ber vitni. Þegar Heimdallur var stofnaður, bar hann einkennið félag ungra íhaldsmanna. Þá var Sjálfstæðisflokkurinn ekki til. Hann var stofnaður tveim árum síðar sem samsteypu "íhaldsflokksins" og "frjálslynda flokksins". Hann hefur alltaf verið mjög frjálslyndur flokkur, þótt sumir óvandaðir andstæðingar hafi oft kallað hann íhald í óvirðingarskyni.

Þegar stefnuskrá Heimdallar var birt á landsfundi Sjálfstæðismanna 1931, flutti þáverandi formaður Heimdallar, Thor Thors, gagnmerka ræðu, er sýndi mikinn stórhug og víðsýni. Þessi stefnuskrá var samþykkt, enda þótt hún mætti nokkurri mótstöðu, og sannaðist þar sem oftar, að hinir eldri ráðamenn Sjálfstæðisflokksins voru frjálslyndir menn, se skildu nauðsyn þess að virða og meta áhugamál æskunnar. Alltaf síðan hefur stefna Heimdallar gengið sem rauður þráður gegnum alla starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Hún var vel og rækilega hugsuð og áttu þar þrír menn grýgstan hlutinn: Formaðurinn Thor Thors, ristjóri blaðsins "Heimdallur" Sigurður Kristjánsso og aðalhvatamaðurinn að stofnun Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Torfi Hjartarson.

Á liðnum árum hafa margir ungir og efnilegir stjórnmálamenn landsins byrjað sinn félagsmálaferil í Heimdalli. Félagið hefur verkað á þá og þeir síðan orðið félaginu, flokknum og þjóðinni nýtir liðsmenn. Þannig mun enn verða, og þannig á það að verða.

… Félag unga sjálfstæðisfólkisins í höfuðborginni, félagið Heimdallur verður að skilja stram tímans eins vel á komandi árum eins og forvígismenn þess gerðu í öndverðu. Það verður að skilja hugsjónir, vonir og þarfir fólksins í öllum landshlutum. Þá mun Sjálfstæðisflokknum vel farnast, og þá mun þjóðinni í heild sinni vel farnast. Hin rétta og sanna sjálfstæðisstefna og hagsæld þjóðarinnar er óaðskiljanleggt. Hvort tveggja ber Heimdalli að vernda.

Sigurður Kristjánsson:
Vörður gegn einræðis- og öfgastefnum

… Hlutverk Heimdallar var frá upphaf það að kenna þjóð sinni frjálslyndi og víðsýni í landsmálum og gætta þess, að þröngsýni og kyrstaða legðu ekki þjóðlífið í hlekki. Hann átti að vera boðberi nýjunga og umbóta, sem bætt hefðu lífskjör þjóðarinnar og fegrað líf hennar.

Hlutverk Heimdallar var einnig það, sem nafn hans bendir til: Að vera á verði gegn utanaðkomandi hættum, svo sem hinum trúarbragðakenndu öfga- og einræðisstefnum, sem í senn eru óþjóðlegar og hættulegar.

Starfsemi Heimdallar hefur verið í fullkomnu samræmi við hlutverk hans. Hann ehfur háð landsmálabaráttu sína undir merki sjálfstæðisstefnunnar. Og á því er enginn vafi, að hann hefur átt ríkan þátt í því:

  • Að Sjálfstæðisflokkurinn hefur orðið frjálslyndasti landsmálaflokkur Íslands.
  • Að Sjálfstæðisflokkurinn tók forustu í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, og leiddi hana til sigurs.
  • Að Sjálfstæðisflokkurinn tóks á hendur landvarnir Íslendinga gegn þeim erlendu stefnum, sem ógna andlegri heilbrgiði þjóðarinnar og sjálfstæði landsins.

Valtýr Stefánsson:
Æskan á samleið með Sjálfstæðisflokknum

Þegar Heimdallur var stofnaður og þetta félag æskumanna innan flokksins hóf markvisst starf sitt, fékk flokkurinn þá endurnýjun, sem orðið hefur honum til þess að verða flokki sínum og þjóð að gagni, hófu baráttu sína með þeirri stefnufestu, bjartsýni og hugsjóna þrótti, sem örvaði aðra flokksmenn og til dáða.

Á fáum árum efldust félagssamtök ungra Sjálfstæðismanna víðsvegar um kjördæmi landsins til ómetanlegs gagns fyrir flokkinn og þjóðina.

Í hvert sinn, sem komið hefur til átaka í stjórnmálunum, síðan Heimdallur var stofnaður, hefur þátttaka unga fólksins verið flokknum hin öflugasta stoð. En þann styrk og beina hlutdeild í sigrum flokksins ber fyrst og fremst að þakka forystumönnum Heimdallar, hins fyrsta æskulýðsfélags innan flokkssamtakanna, er með stefnufestu og djörfung sannfærðu mikinn hluta þjóðarinnar um það, að æskan í landinu á samleið með Sjálfstæðisflokknum.

Sjálfstæðisflokkurinn getur með réttu sýnt fram á, að hann er flokkur allrar þjóðarinnar. En það er þá jafnframt lífsskilyrði fyrir framtíð hans að vera sífellt í nánu sambandi við þann gróanda í þjóðfélaginu, sem æskan skapar með hugsjónum sínum og framkvæmdaþrá.

Það er hlutverk Heimdallar og annarra félaga æskunnar innan flokksins að treysta þetta samstaf í framtíðinni.

Gunnar Thoroddsen:
Boðberi nýrra hugsjóna

Sumir telja, að stefnur í stjórnmálum séu opinberun æðri afla eða einhverra andans jöfra, og séu algildar í öllum löndum á öllum tímum. Aðrir líta svo til, að vissar hugsjónir eigi að ráða ríkjum, en stefnan eigi að vera móttækileg fyrir nýrri tækni, breyttum lífsháttum, auknum óskum um þægindi mannlegs lífs.

Hins síðartalda skoðun hefur verið stefna Heimdallar. Frá öndverðu hefur hann fylgt að málum sjálfstæðisstefnunni. En Heimdallur hefur ótrauður flutt nýjan boðskap, hvenær sem æskuþrótturinn krafðist breytinga og bóta. Heimdallur setti sér stefnuskrá 1931 og markaði þar stefnuna í mörgum umbótarmálum, sem hann barðist síðan fyrir, innan flokks og utan, og fékk fram gengt. Síðan hefur stefnuskráin verið aukin og endurnýjuð. Heimdallur mun jafnan verða trúr því hlutverki sínu að beita sér fyrir menningar-, mannúðar- og framfaramálum, í samræmi við þróun og þroska þjóðfélagsins, á grundvelli athafna- og skoðanafrelsi, en í andstöðu við einokun, kúgun, áþján, hvort sem innlent vald eða útlent á í hlut.

Að mínu viti er hlutverk Heimdallar þríþætt:

Í fyrsta lagi: að safna æskulýð höfuðborgarinnar um hugsjónir Heimdallar og undir hans merki.
Í öðru lagi: að vera hinn sívaxandi aflgjafi nýrra hugmynda og áforma í Sjálfstæðisflokknum.
Í þriðja lagi: að standa eins og foldgnátt fjall um þjóðerni vort og sjálfstjórn.

Bjarni Benediktsson:
Heimdallur er vaxtarbroddur Sjálfstæðisflokksins

Rosknir menn og aldraðir hafa fastákveðnar skoðanir. Hugmyndum þeirra, þótt rangar séu, verður þess vegna torveldlega haggað. Hitt er í senn auðveldara og mikilsverðara, að innræta æskulýðnum réttar skoðanir frá upphafi. Sjálfstæðisflokkurinn á þess vegna að mestu vöxt sinn og viðgang undir atorku og málafylgju Heimdellinga og annarra ungra Sjálfstæðismanna.

Þeir, sem mestu fá áorkað og ötulastir eru í starfi meðal æskulýðsins, efla ekki aðeins flokkinn, heldur afla þeir sjálfum sér æfingar og þroksa til að taka við trúnaðarstörfum og forystu í flokknum, þegar þeir fá aldur til. En slík sífelld og óslitin endurnýjun er flokknum lífsnauðsyn.

Frjálsræði einstaklingsins, samvinna stéttanna og sjálfstæði þjóðarinnar eru höfuð stefnumið Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna er hamingja og velferð þjóðarinnar allrar undir því komin, að Sjálfstæðisflokkurinn sé stór og vel mönnum skipaður.

Sá, sem vinnur vel fyrir Heimdall, gerir því ekki aðeins gott verk í þágu félagsins, heldur vinnur hann og til heilla sjálfum sér, Sjálfstæðisflokknum og allri íslensku þjóðinni.

Guðmundur Benediktsson:
Efling þjóðernistilfinningar og frelsisástar

Heimdallur ef félag ungra manna og á því að vera í fararbroddi þeirra, er leitast við að ryðja torfærum úr vegi komandi kynslóðar og skamma henni betri skilyrði en sú eldri átti að fagna.

Reynsla vor og annarra smáþjóða er sú, að sækja verður fram udnri merkjum þeirra hugsjóna, sem hafa verið aðal-orkugjafar þjóðar vorrar á liðnum tímum: þjóðernistilfinningunni og frelsisástinni. Ef á annan veg er stýrt, er hætta á, að þjóðin missi sjálfstæði sitt og þjóðareinstaklingurinn möguleika sína til framþróunar.

Hlutverk Heimdallar er því fyrst og fremst það að glæða þjóðernistilfinningu og frelsisást Íslendinga.

Ég tel, að Heimdallur hafi verið trúr þessu hlutverki sínu. En aldrei má þó gleyma því, að starfsemi, er miðar í þá átt, er aldrei nógu mikil.

Axel Guðmundsson:
Vörður frelsis og jafnréttis

… Hvað viðkemur starfsemi Heimdallar, lít ég þannig á, að hann hafi afkastað miklu starfi á tiltölulega stuttum tíma. Félagið setti þegar í upphafi merkið hátt og hefur tekist vel að ryðja brautina að því göfuga hlutverki, sem það tók sér fyrir hendur, að vekja og þroska íslenska æsku til dáða. Kennt henni að standa vörð um það, sem hverri þjóð er helgast og dýrmætast, en það er, frelsi og jafnrétti einstaklinganna, sem er undirstaðan að velmegun hverrar þjóðar.

Þá lit ég svo á, að hlutverk Heimdallar hafi og hljóti alltaf að vera það að safna sem flestum æskumönnum og konum á Íslandi undir merki sjálfstæðisstefnunnar, þroska æskulýð landsins í varðstöðu um sjálfstæði lands og þjóðar og búa hann undir baráttu fyrir bættum hag þjóðarinnar í heild, bæði efnalega og menningarlega.

Tel ég, að þar hafi Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna, orðið nokkuð ágengt.

Kjartan Jóhannsson:
Bætt lífskjör, aukin menning

Hlutverk Heimdallar er:

  • Að vera sífellt á verði um stjórnmálalegt, fjárhagslegt og andlegt sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar.
  • Að efla víðsýni og þroska félaga sinna til þess að gera þá hæfari að taka að sér forystu í hverju því máli, er þjóðinni horfir til heilla og framfara, bættra lífskjara og aukinnar menningar.

Magnús Jónsson:
Máttarstólpi Sjálfstæðisflokksins

Heimdallur er félag ungra sjálfstæðismanna.

Þetta mótar starfsemi hans og hlutverk. Og því má lýsa með tvennum hætti eftir því, hvort áherzla er lögð á "ungra" eða "Sjálfstæðismanna".

Ef áhersla er lögð á síðara orðið: Sjálfstæðismanna, er hlutverk Heimdallar hið sama og annarra Sjálfstæðisfélaga, og skal ekki skilgreina það frekar hér.

Tilgangurinn mun líka vera sá, að greina sérhlutverk Heimdallar, með áherzlu á fyrra orðinu: Ungra.

Þessi starfsemi og þetta hlutverk má aftur greina í tvennt:

  1. Félag ungra Sjálfstæðismanna elur upp góða Sjálfstæðismenn og býr þá undir starfið. Með fræðslu, bóklegri og verklegri og með þjálfun í stjórnmálastarfsemi, veldur Heimdallur því, að meðlimir koma fram fræddir, fullreyndir og þjálfaðir, þegar er aldur leyfir þeim fulla þátttöku í meðferð landsmála. Það er nú þegar fram komið og verður í æ ríkara mæli staðreynd, að mátttarstólpar Sjálfstæðisflokksins eru gamlir Heimdellingar.
  2. En auk þessa starfs að fræðslu og þjálfun, hefur félag ungra Sjálfstæðismanna beint hlutverk með höndum í flokksstarfseminni. Æskumennirnir, stúlkur sem piltar, eru nauðsynlegir til alhliða starfs og fjölþættra hæfileika flokksins. Þau eru skyggnari á nýja tímans tákn, óbeygðari af reynslunnar vobrigðum og sprettharðari en roskna fólkið. Æskan leggur sífellt til ný viðfangsefni, er óþolinmóð og framsækin. Enginn alhliða flokkur má vera án þessara krafta. Þetta tvíþætta starf ungra Sjálfstæðismanna hefur Heimdallur, að minni hyggju, unnið af mikilli giftu, þrautseigju og dugnaði og því einnig unnið heillaríkt starf sem félag ungra Sjálfstæðismanna.

Hald svo áfram Heimdallur!

Sigurbjörn Þorkelsson:
Sigursæl barátta

Þegar stjórnmálafélagið Heimdallur er orðið 20 ára, og ég hugleiði, hvaða áhrif félagið hafi haft í íslenzkum stjórnmálum, þá finnst mér þau áhrif vera geysimargþætt, þótt tveir séu þar sterkustu þættirnir.

Það var rúmlega ár liðið frá stofnun landsmálafélagsins Varðar, þegar nokkrum meiðlimum þess félags þótti nauðsynlegt, að ungir sjálfstæðismenn sameinuðust einnig um sinn eigin félagsskap, þar sem þeir gætu rætt áhugamál sín og komið fram með skoðanir sínar án íhlutunar hinna eldri. Það verður því að ráði að kalla saman til fundar unga menn ú r öllum stéttum, verkamenn, iðnaðarmenn, verzlunarmenn og mentnamenn, en þeir munu hafa verið fjölmennastir.

Þarna æfðu þessir ungu menn mælskulist með svo góðum árangri, að þaðan hafa komið margir af hinum bezt máli förnu foringjum meðal Sjálfstæðismanna.

Í Heimdalli hafa líka verið menn, sem flutzt hafa víða að af landinu og þroskast þar vel í samstarfi við bæjarmennina og stuðlað þannig að bættri sambúð meðal Reykjavíkur og annarra hluta landsins. Heimdellingar hafa líka átt með tillögum sínum frumkvæði, innan síns flokks, að mörgum þarfa málum, t.d. það að kosingaréttur skyldi miðaður við 21 ár.

Annar þáttur starfseminnar, og ekki ómerkari, er sá, að Heimdellingar hafa farið víða um land og stofnað ný félög ungra Sjálfstæðismanna, sem svo hafa stuðlað kappsamlega að kosningasigrum Sjálfstæðisflokksins úti á landi, auk þess sem móðurfélagið Heimdallur hafur starfað ötullega að kosningum í höfuðstaðnum.

Félagið hefur verið í sífelldri aukningu, og þó mest síðustu árin, þegar meðlimaaukning hefur skipt þúsundum og ekki sjáanlegt lát á henni.

Þessi mikla aukning Heimdallar hefur haft stórkostleg áhrif á framgang sjálfstæðisstefnunnar, því að þar sannaðist að, "ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtíðarvegi." - og meðan þannig stefnir kvíði ég engu framtíð sjálfstæðisstefnunnar, sem er framtíð Íslands.

Kristján Guðlaugsson:
Skóli heilbrigðrar æsku

Hlutverk allra æskulýðsfélaga er að auðga og þroska ungu kynslóðina, á einn eða annan veg. Stjórnmálafélögin hafa þar ekki sérstöðu, en þau beina hugum æskumannanna að hagnýtum efnum, - dægurmálunum, sem efst eru á baugi og þjóðfélagsstefnum í framtíðinni.

Enginn einstaklingur er sjálfum sér nógur. Hann þarf að læra af öðrum, vilji hann ekki vara þurs. Stjórnmálafélögin eru einstaklingum skóli. Þau auka ekki einvörðungu á víðsýni manna og skilning, heldur kenna þau einnig konum og körlum að koma fram á mannfundum, láta hugsanir sínar í ljós í ræðu og riti, svo og að brjóta mál til mergjar upp á eindæmi, en í andlegu samfélagi við aðra. Sjálfstæði í skoðunum er það ekki, að halda fast við skoðun sína á hverju sem gengur, heldur hitt að móta hana eftir breyttum aðstæðum. Hvert mál verður að vega og meta og skoða það frá öllum hliðum. Svo verða menn að velja og hafna og mynda sér á þann hátt sjálfstæða skoðun, eftir skynsemi og mannviti, sem síðan er barizt fyrir, eftir því sem hugur manna stendur til og ytri aðstaða leyfir.

Hlutverk Heimdallar í íslenzku þjóðlífi er og hefur verið þýðingarmikið. Félagið er skóli heilbrigðrar æsku, sem vill þroskast í þágu föðurlands síns og helga því krafta sína. Æskan er auðug af hugsjónum og berst ótrauð fyrir þeim, - sé hún sönn æska. Megi Heimdallur glæða þann hugsjónaeld, sem lifir í hverju ungu hjarta, - forðast að múlbinda menn við tillærðar kennisetningar, en kenna þeim að vega og meta, þannig að þeir öðlist sjálfstæði í hugsun og hugrekki í framkvæmdum, sem beinast að framförum í þjóðlífinu, - en framfarir eru fjöregg þjóðarinnar.