|
Nafnið Heimdallur táknar þann, sem lýsir upp eða varpar ljósi yfir heiminn. Í samræmi við hið fagra nafn er einnig hlutverk Heimdallar meðal goða. Því lýsir Snorri þannig á sinn óviðjafnanlega hátt í Eddu sinni: ,,Heimdallur heitir einn; hann er kallaður hvíti-ás; hann er mikill og heilagur. Hann báru að syni meyjar níu og allar systur. Hann heitir og Hallinskíði og Gullintanni; tennur hans váru af gulli; hestur hans heitir Gulltoppur. Hann býr þar er heita Himinbjörg við Bifröst; hann er vörður goða og situr þar við himinsenda að gæta brúarinnar fyrir bergrisum; hann þarf minna svefn en fugl; hann sér jafnt nótt sem dag hundrað rasta frá sér; hann heyrir og það, er gras vex á jörðu eða ull á sauðum og allt það, er hærra lætur. Hann hefir lúður þann, er Gjallarhorn heitir, og heyrir blástur hans í alla heima".Þannig var Heimdallur. Hann hafði á hendi það starf, sem hinn mesti trúnaður og ábyrgð fylgdi; hann var vörður goða og vökumaður. Gæzlu hans og árvekni var það að þakka, að tröll og bergrisar réðu ekki til uppgöngu á himinbrúna, að goðin gátu notið friðar og öryggis. Skilningarvit hans eru skörp af langri þjálfun; hann sér jafnt nótt sem dag og heyrir, er gras vex á jörðu. Og þegar hann blæs í lúður sinn, Gjallarhorn, viðvörunarmerkið um nálæga hættu, þá heyrist það um alla heima. Heimdellingar mega ekki gleyma því, hvernig sá var sem félag þeirra tekur nafn af. Honum eiga þeir að líkjast í árvekni og skyldurækni í því höfuðstarfi sínu að vera á verði. Vera jafnan viðbúnir, er þjóðin þarf á liði þeirra að halda. Vera á verði gegn bergrisum og hrímþursum þjóðhættulegra stjórnmálastefna. Berjast fyrir nytsömum framfaramálum, sem þjóðarnauðsyn heimtar. Efla ættjarðarástina, sem er ein af níu mæðrum Heimdallar, þjóðræknina, trúna á landið og þjóðina, á sigur þess, sem réttara horfir. Megi heill og gifta fylgja félaginu Heimdalli á komandi árum. Megi það jafnan verða þjóð sinni að sönnu gagni!
Guðni Jónsson
Afmælisrit, Heimdallur 10 ára, 1937 |